It's not just football, it's a way of life!

Sindri mfl kvk

17.04.2007 08:23:13 / mflkvk

gera eitthvað?

þar sem að ég er nú komin með passwordið hef ég ákveðið að skella inn smá bloggi ;P

allavega..
3 flokkurinn að fara á akureyri núna um helgina í æfingarferð, gangi þeim bara vel þar.. en svo fer bara að líða að því að leikirnir fari að byrja hjá okkur..
og þá er spurning hvort að við ætlum að gera eitthvað til þess að þjappa hópnum aðeins saman..peppa upp liðsandann og búa okkur undir vonandi
skemmtilegt sumar með góðum árangri?

ég persónulega er alveg til í að gera eitthvað skemmtilegt, en hvað segjiði þið.. ?

-Sandra


» 15 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 14:26:37 / mflkvk

æfing í kvöld kl. 18:30 inni

Útaf körfuboltaleiknum er æfing inni í kvöld kl 18:30, semsagt með 4. flokki.

Kveðja Valdís, víst sjálfkosin fyrirliði. :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 22:36:39 / mflkvk

5. sæti :-)

Ég ætla að leyfa mér að skrifa smá review um hvern leik, svona mitt álit, þar sem þetta var frábært mót. Eitt það besta sem ég hef keppt á lengi.

Sindri 0 - 4 KR: Við byrjuðum kannski ekki alveg nógu vel, en þrátt fyrir þessi 4 mörk þá finnst mér við hafa verið óvenju vakandi miða við fyrsta leik. Fyrsti leikurinn er alltaf erfiður, þá t.d. útaf við erum ekki vanar svona stórum velli innanhúss, við höfum ekkert keppt í vetur (fyrir utan þessa 2 leiki við Leikni) og einnig er hræðsla við stóru nöfnin alltaf til staðar. En þrátt fyrir þetta þá hefðum við ekki þurft að fá 4 mörk á okkur, tvö hefði verið nóg og við hefðum allavega átt að setja 1. Við gáfum þeim of mikið af færum og það komu allaveg 2 mjög ódýr mörk.

Sindri 4 - 0 Þróttur Rvk: Mjööööög góður leikur. Þó Chakki hafi sagt að þetta væri okkar leikur, að við ættum möguleika þarna, þá fórum við samt svona "við sjáum hvað gerist" inní leikinn. Byrjuðum vel og urðum eiginlega bara betri eftir það, fannst mér. Náðum að skora og þá varð þetta betra og betra.
Mörkin: Heba 2, Valdís 1 og Karítas 1.

Sindri 2 - 5 Breiðablik: Að mínu mati stóðum við okkur mjög vel í þessum leik. Það komu samt 2 klaufamörk, en við hinsvegar náðum líka að skora 2, sem kannski enginn bjóst við í byrjun. Getum verið mjög ánægðar með þennan leik. 
Mörk: Heba 1 og Valdís 1.

Eftir þetta lentum við í 3 sæti í okkar riðli og kepptum þar af leiðandi um 5-6 sæti.

Sindri 4 - 1 Tindastóll: Seinasti leikurinn og tókum hann með trompi. Við vorum reyndar orðnar þreyttar, langur dagur, og hefðum vel getað sett fleiri. En við unnum, og það skiptir öllu. Niðurstaðan semsagt 5 sæti, mun betur en allavega ég bjóst við og þar að leiðandi mjög ángæð. Vil einnig koma því að, að við vorum með Tindastól í klefa. Svo andrúmsloftið eftir leikinn inní klefa var frekar awkwaaaard. hehe :S ;)
Mörk: Heba 1, María 1, Valdís 1 og Karítas 1.

Þetta mót sýndi okkur að við getum mun meira en við höldum. ...þó við séum bara í Sindra! Þá meina ég þetta ekki að mér finnst það eitthvað ómerkilegt, heldur hvernig hin liðin sjá okkur. Maður tók mjög vel eftir viðhorfinu eins og í Þróttara leiknum, hvað þær voru brjálaðar því þær voru að tapa og það fyrir Sindra. Einnig fann ég það á nokkrum Blikum að ef maður náði af þeim boltanum fékk maður nokkur olbogaskot, pínu pirringur í gangi.
Það sem ég er einnig ánægð með er hvernig við vorum við hvor aðra inná vellinum. Mórallinn var góður, og við vorum að styðja hvor aðra og hvetja ekki eins og við höfum nokkrun tíma gert áður.

Ef þið viljið einhverja nákvæma lýsingu á mörkunum þá get ég gert það. Man nú samt ekki alveg hvernig öll voru en flest. :)

Í dag var síðan æfing og hún var fín. Ekki alveg venjuleg sunnudagsæfing sem var mjög gott þar sem ég hélt ég myndi ekki geta stigið fram úr í morgun útaf verkjum. Á morgun er síðan venjuleg æfing, hlaup kl. 6 og svo æfing frá hálf 7 úti.

-Valdís harðsperra


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 21:01:08 / mflkvk

2.flokkur - úrslit

Jæja stelpur... 

Það er nú kominn tími til að einhver skrifi inn á þessa síðu í von um að hún taki smá við sér, enda veitir ekki af.. Eins og mætingarnar á fótboltaæfingar mættu gera líka...

Við erum búnar að vera í nokkuð góðu prógrammi síðustu vikur, tvisvar í viku skokk 5-6 km fyrir æfingar og síðan ágætis æfingar eftir það...  Því miður hefur mætingin ekki verið frábær en vona að hún skáni..  En ég ætla ekki að vera að kvarta heldur koma mér að efninu..

Eins og við kannski vitum allar, þá munum við skella okkur í bæinn næstu helgi og keppa til úrslita í 2.flokki.  Við verðum í riðli með KR, Breiðablik og Þrótt Reykjavík og er okkar fyrsti leikur er við KR kl.13:30 laugardaginn 17.febrúar.   Hvenær lýst ykkur best á að fara, föst og koma á laugardag, fara á lau og koma á sun eða vera bara alla helgina?

Þær stelpur sem eru í hópnum eru og mættu á æfingu:   Sigurbjörg Sara, María, Heba, Sandra, Iðunn,  Ásta?, Hulda, ég og lejla er samt ekki viss alveg, en einnig verða Valdís og Ríkey og Karítas ef hún vill/getur eða eitthvað.

Ef ykkur langar svo til að hittast eða eitthvað, þá er örugglega hægt að finna eitthvað skemmtilegt að gera..     

Kveðja

Guðrún Waterboy 


» 27 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 18:06:56 / mflkvk

FIRMAKEPPNI

Firmakeppnin verður haldin í kvöld, 27.desember, og eigum við að mæta kl. 19.   Endilega dragið sem flestar með ykkur:) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 01:03:33 / mflkvk

nýtt lúkk

Jæja, hver tók sig til og breytti lúkkinu? Hélt ég væri komin á einhverja allt aðra síðu, hehe..

-Valdís


» 22 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 16:19:05 / mflkvk

Framhaldsskólamótið...

Jæja... Þann 22.október munum við keppa í framhaldsskólamótinu.. Keppnin mun fara fram á Ásvöllum og munum við verða mættar þangað um 11.  Hins vegar ætlum við( ég og Sara) amk að fara á föstudaginn( eða fimmtudagskvöld) kemur allt í ljós..  

En eins og allir vita, fylgja mörg vandamál stelpum.  Í fyrsta lagi, þá þurfum við annan bíl til að keyra okkur suður.  Þar sem að foreldrar okkar treysta okkur ekki til að keyra ( af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ;) ) þá höfum við reddað okkur einkabílstjóra ( 95% öruggt)...  Því væri ágætt ef einhver annar gæti reddað sér fari, eða bjóði fram bíl...  Samt örugglega eitthvað far laust með okkur (1, ef ekki 2).. kemur bara í ljós..

Annað vandamál eeeeer mannskapur, og vorum við að spá ef að Ásta gæti kannski líka komið með okkur, fyrst að hún er lögleg á annað borð.. ekki veitir af held ég...

Það er semsagt komið á hreint með hverjum við verðum með í riðli.  MR, FSu, Kvennó, MK og fleiri ágætis skólar...

En segi þetta nóg í bili.

Kv. Guðrún


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 20:09:56 / mflkvk

Dagurinn eftir kvöldið...

Sælar stúlkur

Vil byrja á því að þakka fyrir gærdaginn... þið voruð frábærar...

En ég vildi bara minna ykkur á að það gleymdist alveg hellingur hérna heima hjá mér s.s.:

  • herðatré
  • armband
  • snyrtidót
  • spennur
  • skór ( mörg pör)
  • lyklar
  • pils
  • peysa
  • jakki
  • og brækurnar hennar söru

Hafið bara samband við mig, eða komið bara og náið í það sem ykkur vantar...

kv. Guðrún


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 13:53:14 / mflkvk

Kvöldið í kvöld

Jæja... þá er komið að því.. við ætlum að hittast heima hjá mér í dag, hressar að vanda... með auka 500 kr...upp í ýmislegan kostnað...

kv. Guðrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 15:32:14 / mflkvk

Hagatún 15 - kl: 20:00

Hagatún 15 klukkan 20:00 stúlku kindur;)

500 kall inn, svalandi vatn á krananum og veitingar í boði Guðrúnar

Lena Hrönn getur ekki beðið eftir að hitta rollurnar sínar og mætir að sjálfsögðu til í slaginn, en hvað um Karítas, Ríkey og Sigurborgu?

Sjáumst EiturHressar;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 15:52:32 / mflkvk

Uppskeruhátíð

Sælar stúlkur

Þannig er mál með vexti að í  ár munum við toppa drengina í skemmtiatriðum, eða allavegana hafa skemmtiatriði ekki satt!!!

Svo að við erum búnar að komast að þeirri niðustöðu að við þurfum að mæla okkur mót saman og ákveða eithvað skemmtó...

Ég Sara er tilbúin að hleypa ykkur í hús mín en spurningin er hvenær...hvernig væri annað kvöld? hmmha?

En allavegana þá ætlar hún Fjóla að mæta með gítarinn og bara allar þær sem kunna á  eithvað hljóðfæri, Sandra Rán með trommusettið og Brynja blokkflautuna.

Síðan verða bar allar að vera duglegar og koma með hugmyndir

Endilega látið allar vita af þessu og commenntið um hvort einhver tími hntar ykkur betur en einhver annar og hvort þið komist...allrætí;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 12:26:03 / mflkvk

Takk firir sumarið..

Jæja þá er sumrinu víst lokið.. Eða allavega höfum við lokið við alla okkar leiki og ég er allavega farin í skóla ásamt held ég flestum.

Enn hins vegar langaði mig nú bara að skrifa nokkrar línur hingað inn og þakka ikkiur firir sumarið sem að var alveg príðilegt.. =) og  þá sjáumst við nú vonandi bara hressar já svona einhvern tímann um jól.. og svo auðvitað sjáumst við allar eld hressar og til búnar í slaginn næsta sumar..

 Allavega er ég að fara að æfa fótbolta hérna á laugarvatni sem að verður stuð.. :P  Enn þið getið filgst með mér á ---> www.sigurborg7.blog.is <----  og síðan bara takk kærlega firir sumarið og hafið það gott í vetur

-Sigurborg Jóna :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 14:53:13 / mflkvk

Góðan dag

Jæja kannski kominn tími á að segja eitthvað. Hmm..

Næsta æfing er í dag kl. 19:30. Ég vona að englandsfararnir láti sjá sig. Það er leikur á morgunn ;)

-Valdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 14:22:09 / mflkvk

Myndir og smá bull..:)

Sæælar...
Já hérna ég var að setja inn mindir síðan við vorum heima hjá mér að grilla og einhvað fleira..:P
Ætla síðan að reyna að koma innn vidjóunum sem ég tók líka.. endarlaust findin.. t.d. Hjálpræðisherinn, Kínakál, og karítas og lena að fara á kostum.. ;)

Enn já linkurinn er bæði hérna:  http://sissa7.spaces.msn.com/photos/
og einnig set ég hann undir myndir hérna til vinstri þannig að ég hvet ikkur líka endilega til að setja ikkar mindir..:D

Annars vil ég líka þakka ikkur firir bara mjög skemmtilega ferð á Akureyri.. þótt við getum nú bara tekið nokur smá atriði út..:P Enn þar má nú meðal annars nefna tyggjó..!! hehe jámm það náðist allt úr með þolimæði og matarolíu og hjálp mömmu..:lol: og já hey svarið þið í simann ikkar í bíó??? 8) hehe þetta var stuð...

Enn annars þá ætlaði ég nú bara að láta vita af mindunum enn varð aðeins lengra  8)
Enn já ég kem ekki á næstu æfingu.. kemur á óvart:$ Enn ég ætla að reina að gera mitt besta til að koma í leikinn á sunnudaginn..

Sigurborg 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 12:36:37 / mflkvk

..

Frí í dag, æfing á morgun kl. 19:30.

-Valdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5